Héðinn

Það var eftirminnileg sjón fyrir Vestmannaeyinga þegar ný Heimaey VE1 sigldi í fyrsta sinn inn í heimahöfn þriðjudaginn 15. maí. Ekki aðeins er skipið glæsilegt ásýndum, heldur ber það með sér nýja dögun í íslenskum sjávarútvegi. Reksturinn er mun hagkvæmari en á eldri skipum og með öflugri kælingu og auknum siglingahraða skilar það ferskara og verðmætara hráefni að landi en áður hefur þekkst.

Heimaey VE1, sem væntanleg er í fyrsta sinn til heimahafnar næstkomandi þriðjudag, er af nýrri kynslóð Rolls-Royce hannaðra fiskiskipa, þar sem hámarks aflaverðmæti fást með afkastamikilli kælingu og hagkvæmni í rekstri.  Allur aðal vélbúnaður skipsins er frá Rolls-Royce. Ísfélag Vestmannaeyja samdi við ASMAR skipasmíðastöðinna í Chile um smíði skipsins og voru samningar þess efnis undirritaðir þann 1. nóvember 2007. Héðinn er þjónustu- og umboðsaðili Rolls-Royce Marine á Íslandi og sá um undirbúning verkefnisins.

Héðinn bauð Braga Ásgeirssyni listmálara nýlega í heimsókn til að líta á "gamlan vin" í matsal Héðins í Gjáhellunni. Um er að ræða stórt málverk - nafnlaust - sem Bragi málaði á árunum 1961-62. Þetta er eitt stærsta verk Braga og málaði hann það á tvær gabon plötur með Hörpu silki. Í viðtali við Braga í myndbandinu hér fyrir neðan kemur fram að hann málaði verkið fyrir skemmtistaðinn Lídó og greiddi með því tveggja ára húsaleigu fyrir vinnustofu sem hann hafði í húsinu meðan það var í byggingu. Núna eru 365 miðlar til húsa þar sem Lídó var.

Níutíu fulltrúar á vorráðstefnu Félags íslenskra fiskmjölsframleiðenda voru í gær boðnir til móttöku í húsakynnum Lýsis á Grandagarði, að afloknum fyrra degi ráðstefnunnar. Tilefni heimsóknarinnar var að kynnast starfsemi Lýsis og skoða hina einstaklega vel heppnuðu verksmiðju fyrirtækisins. Gestir litu einnig á framkvæmdir við stækkun verksmiðju Lýsis, sem er á lokametrunum. Héðinn annast smíði og uppsetningu nýju verksmiðjunnar, líkt og fyrsta hlutann, sem var reistur fyrir tæpum áratug. 

Á þessu ári eru 90 ár liðin frá stofnun Héðins, nánar tiltekið 1. nóvember. Fyrirtækið var stofnað á grunni vélsmiðju Bjarnhjeðins Jónssonar í Aðalstræti 6b í Reykjavík árið 1922. Til heiðurs Bjarnhjeðni gáfu stofnendurnir, þeir Bjarni Þorsteinsson vélfræðingur og Markús Ívarsson vélstjóri, fyrirtækinu nafnið Héðinn. 

Þætti Héðins hf. í fyrri hluta straumhækkunarverkefnis Rio Tinto Alcan í Straumsvík er lokið. Tugir starfsmanna Héðins hafa unnið sleitulaust að þessu verkefni í rúmt ár. Undirbúningur verksins hófst hjá Tæknideild Héðins haustið 2008 í samstarfi við Rio Tinto Alcan og HRV verkfræðifyrirtækið. Í ársbyrjun 2011 hófst smíði við breytingar á núverandi straumleiðarakerfi álversins.

Varðskipið Þór hefur að vonum vakið mikla athygli, enda glæsileg og langþráð viðbót í varðskipaflota Íslendinga. Þór er hinn eini sanni "Rolls" íslenska flotans, skipið er Rolls-Royce hönnun og allur aðal vélbúnaður skipsins er frá Rolls-Royce. Héðinn annast sölu, þjónustu og viðgerðir á öllu sem viðkemur Rolls-Royce Marine, þannig að áhugi Héðinsfólks á Þór er mikill.

Héðinn hf
Gjáhellu 4
221 Hafnarfirði
Sími 569-2100 

Netföng og símanúmer

ISO 9001 vottun

Gæðastjórnunarkerfi Héðins hf. eru vottuð af British Standards Institute samkvæmt ISO 9001 staðlinum. 

Vottaðir suðuferlar

Suðuferlar fyrir ál, stál og ryðfrítt stál eru vottaðir af Inspekta í Noregi samkvæmt staðli ÍST EN ISO 15614.

Atvinna hjá Héðni

Héðinn hf. býður fjölbreytt störf á sviði vélsmíði, rennismíði, plötusmíði og málmsuðu. Við tökum nema í öllum þessum iðngreinum.
Sækja um starf


Forsíða